Bókanir í ferðir Norrænu til Íslands hafa verið að taka við sér eftir heldur daprar vikur og mánuði vegna kórónuveirufaraldursins. Von er á 150 farþegum í næstu ferð og í byrjun júlí, þegar sumaráætlun ferjunnar tekur gildi, eru bókaðir 550 farþegar.
Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag kveðst Linda Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril line á Íslandi, kveðst ánægð með að ferðaþjónustan sé að taka við sér og vonast til að hún haldi áfram að glæðast.
Að undanförnu hafa aðeins verið 20 til 50 manns í ferð enda gestir landsins settir í sóttkví. Þegar skipið kemur næst, á þriðjudaginn í næstu viku verður búið að opna landið meira en gestir frá öðrum löndum en Færeyjum og Grænlandi þurfa þó að fara í skimun fyrir kórónuveirunni. Von er á 150 farþegum með þeirri ferð og yfir 200 í næstu ferð þar á eftir.
Sumaráætlun Norrænu tekur gildi um mánaðamótin og eru 550 farþegar bókaðir í fyrstu ferð eftir það, 2. júlí. Fleiri voru bókaðir en hluti þeirra afbókaði sig í kjölfar tilkynningar stjórnvalda um að greiða þurfi 15 þúsund króna gjald fyrir skimunina eftir 1. júlí.
Unnið hefur verið að skipulagningu sýnatöku á Seyðisfirði og segir Linda að málið hafi verið unnið í nánu samstarfi við landlækni, sóttvarnalækni og Heilbrigðisstofnun Austurlands. Ákveðið hefur verið að taka sýnin um borð í ferjunni fyrstu tvær vikurnar. Þar sé góð aðstaða og telur hún að sýnatakan ætti ekki að taka nema tæpar tvær klukkustundir nú á þriðjudaginn.
Sýnin fara með flugi til greiningar hjá Íslenskri erfðagreiningu en á meðan beðið er niðurstöðu geta farþegarnir farið í náttstað, þar sem þeir eiga pantað.
Uppfært klukkan 11:47.
Fréttin birtist í Morgunblaðinu sem kom út í dag. Þar kom fram að sýni yrðu greind á Landspítalanum en hið rétta er að Íslensk erfðagreining mun sjá um greiningu sýna næstu vikurnar.