Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir áform um húsnæðisfélagið Blæ í biðstöðu. Rætt var um að félagið myndi byggja 400-600 hagkvæmar leiguíbúðir á ári.
Lífeyrissjóðirnir hafi ekki verið tilbúnir að fjármagna félagið, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Útlit er fyrir að á næstu árum verði hundruð hagkvæmra íbúða byggð, ef ekki þúsundir. Bjarg er að byggja hundruð íbúða og til stendur að veita hlutdeildarlán til uppbyggingar á að hámarki 400 íbúða á ári. Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvers konar íbúðir það verða.