Lögreglan lýsir eftir þremur Rúmenum

Einn mannanna sem lýst er eftir.
Einn mannanna sem lýst er eftir. Ljósmynd/Aðsend

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir þremur rúmenskum karlmönnum sem komu til landsins fyrri hluta vikunnar í sex manna hópi, en þeir kunna mögulega að vera smitaðir af COVID-19.

Tveir samferðamanna þeirra hafa verið greindir með COVID-19 og því er uppi grunur um að það sama geti átt við um þremenningana, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Ljósmynd/Aðsend

Mennirnir sem leitað er að heita Pioaru Alexandru Ionut, Adrian Badiu og Madalin Sorin Dragomir. Ionut og Dragomir eru á þrítugsaldri, en Badiu er á fertugsaldri.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir þremenninganna, eða vita hvar þeir eru niðurkomnir, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.

Meðfylgjandi eru myndir af tveimur mannanna, sem lögreglan þarf nauðsynlega að ná tali af.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert