Fyrstu farþegar á leið í skimun

Komufarþegar á Keflavíkurflugvelli núna á ellefta tímanum.
Komufarþegar á Keflavíkurflugvelli núna á ellefta tímanum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrsta flugvél dagsins lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 9:35 í morgun. Vélin er frá flugfélaginu Wizz Air og kom frá London. Farþegar hennar eru þeir fyrstu sem munu fara í skimun fyrir kórónuveirunni á Keflavíkurflugvelli, en nýjar reglur um komu ferðamanna til landsins tóku gildi í dag.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Átta vél­ar eru á áætl­un í dag, frá Ósló, London, Fær­eyj­um, Frankfurt, Stokk­hólmi og þrjár frá Kaup­manna­höfn. Þá eru átta brott­far­ir fyr­ir­hugaðar til sömu áfangastaða.

Wizz Air.
Wizz Air. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert