Eftirspurn eftir sumarstörfum minni en áætlað var

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eftirspurn námsmanna eftir sumarstörfum, sem sköpuð voru í sérstöku átaksverkefni stjórnvalda, hefur verið töluvert minni en vísbendingar voru um að yrði. Alls höfðu sveitarfélög landsins heimild til að ráða í 1.700 störf í sumar, en ekki hefur tekist að ljúka ráðningu nema í tæplega 1.450 af þeim þar sem margir umsækjenda höfðu þegar fengið vinnu annars staðar.

Þá er umsóknarfresti lokið hjá stofnunum ríkisins og lokatölurnar þar voru að 1.510 námsmenn sóttu um þau 1.500 störf sem í boði voru og sótti hver námsmaður um tæplega sjö störf að meðaltali, að því er félagsmálaráðuneytið greinir frá í tilkynningu. 

Settu 2,2 milljarða til fjölgunar starfa

Ráðuneytið bendir á, að til þess að bregðast við því ástandi sem skapaðist á vinnumarkaði vegna Covid-19, lagði félags- og barnamálaráðherra til að veitt yrði 2,2 milljörðum króna í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar um 3.400 störf.

„Eftirspurn námsmanna eftir störfunum hefur verið töluvert minni en vísbendingar voru um að yrði. Alls höfðu sveitarfélög landsins heimild til að ráða í 1.700 störf í sumar, en ekki hefur tekist að ljúka ráðningu nema í tæplega 1.450 af þeim þar sem margir umsækjenda höfðu þegar fengið vinnu annars staðar. Þá er umsóknarfresti lokið hjá stofnunum ríkisins og lokatölurnar þar voru að 1.510 námsmenn sóttu um þau 1.500 störf sem í boði voru og sótti hver námsmaður um tæplega sjö störf að meðaltali. Þrátt fyrir að ekki sé búið að úthluta þessum störfum er ljóst að ekki mun takast að fylla í þau vegna þess að margir námsmenn eru þegar komnir með vinnu,“ segir í tilkynningunni. 

Komið á óvart hversu margir námsmenn voru komnir með vinnu

Þá segir, að það hafi komið sveitarfélögum og opinberum stofnunum á óvart hversu margir námsmenn hafi verið búnir að ráða sig í vinnu þrátt fyrir að hafa sótt um störf sem búin voru til í átakinu. Því sé ljóst að staða námsmanna á vinnumarkaði sé umtalsvert betri en forystufólk námsmanna hafi talið hingað til, en alls er um 500 störfum, sem búin voru til í tengslum við átakið, óráðstafað og líkur á því að þeim fjölgi nokkuð þegar vinnu við umsóknir um störf hjá opinberum stofnunum lýkur.

„Nú þegar myndin er að skýrast er það mikið gleðiefni að tekist hefur að skapa það mörg störf að þau ganga ekki út. Við fórum af stað með 3.400 ný sumarstörf fyrir námsmenn í fyrstu lotu, og vorum tilbúin að bæta enn frekar í ef aðstæður kölluðu á það. Við sjáum hins vegar á þessum tölum að eftirspurn námsmanna í þessi störf er minni en gert var ráð fyrir, og því ekki þörf á að skapa fleiri tímabundin störf í sumar,” segir Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert