Þrjú ný smit — eitt á landamærunum

Tvö greindust á veirufræðideild Landspítalans
Tvö greindust á veirufræðideild Landspítalans AFP

Þrjú ný veirusmit greindust í gær. Eitt þeirra greindist eftir skimun á landamærum Íslands. Hin tvö greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.

Alls hafa 702 sýni, sem tekin voru á landamærunum í gær, verið greind. Á Landspítalanum voru greind 36 sýni.

Þetta kemur fram á vefnum covid.is. 

Smitin tvö á Landspítalanum eru að vonum tveggja lögreglumanna á Suðurlandi.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert