Níu ára stúlka varð fyrir rafskútu á Laugavegi í gærkvöldi og hlaut hún áverka á fæti. Tvær konur voru á tveimur rafskútum á Laugaveginum og ók önnur þeirra á stúlkuna að því er segir í dagbók lögreglu.
Konurnar stöðvuðu en þegar þær heyrðu að Neyðarlínan hefði verið látin vita óku þær á brott. Sjúkrabíll kom á vettvang og hlúði að stúlkunni, sem var í bænum ásamt föður sínum. Stúlkan er óbrotin en aðeins marin. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.