Skjálfti af stærð 5,8 varð 33,8 kílómetra norðaustur af Siglufirði klukkan 19:07. Skjálftinn er á stærsti sem orðið hefur í skjálftahrinu sem hófst um hádegi síðastliðinn föstudag.
Staðsetning skjálftans er rúma 10 km lengra frá landi en stóru skjálftarnir sem urðu í gær.
mbl.is ræddi við fólk í Grímsey, þar sem fannst að sögn „mjög vel“ fyrir skjálftanum nú rétt eftir sjö. „Það hristist allt og skalf og stóð í meira en 30 sekúndur.“
Nokkrir eftirskjálftar hafa orðið, þar af átta yfir 3 að stærð einn 4,1 að stærð og einn 4 að stærð.
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinunnar, en yfir 2.000 skjálftar hafa orðið síðan hrinan hófst, fjölmargir yfir 3 að stærð.
Stærstu skjálftarnir til þessa urðu í gærkvöldi, 5,4 og 5,6 að stærð, og fundust þeir víða á landinu.
Fréttin hefur verið uppfærð eftir að yfirfarin gögn um stærð skjálftans bárust frá Veðurstofu Íslands.