Óhætt er að segja að allt hafi leikið á reiðiskjálfi í húsi á Reykjum í Reykjaströnd í Skagafirði þegar einn af stóru skjálftunum þremur reið yfir Norðurland um helgina. Húsið er um 60 kílómetra frá upptökum skjálftahrinunnar norður af Siglufirði.
Á upptöku úr öryggismyndavél sem sjá má hér að neðan má sjá hvernig áhrif skjálftans sem varð klukkan 19:26 á laugardag vörðu í um 25 sekúndur, en skjálftinn mældist 5,6 að stærð. Drunurnar sem fylgja eru vægast sagt óhugnanlegar.
Veðurstofa Íslands fékk myndskeiðið sent og deildi á Facebook-síðu sinni og lætur áhugaverðan fróðleiksmola fylgja með um staðhætti: „Reykir eru skammt frá Grettislaug þar sem Grettir á að hafa hlýjað sér eftir Drangeyjarsund. Glámur, draugurinn sem Grettir glímdi við, hefði verið stoltur af þessum látum sem heyrast greinilega, en sjón er sögu ríkari.“