Liðsmenn björgunarfélags Árborgar, sérsveitar ríkislögreglustjóra og sérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru við bakka Ölfusár vegna leitar að manni sem ók út í ána í grennd við Selfosskirkju 25. febrúar 2019.
Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Hvorki maðurinn né bifreið hans hafa fundist, en áin var kembd mjög rækilega og bakkar hennar gengnir af björgunarsveitum í kjölfar þess að bifreiðin endaði í ánni en án árangurs.