Karlmaður slasaðist í gassprenginu í tjaldi í Básum í Þórsmörk snemma í morgun. Í samtali við mbl.is segir Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, að eldur hafi kviknað út frá gaskúti sem lak. Bruninn sé alvarlegur og maðurinn brunninn bæði á höndum og í andliti. Tveir voru í tjaldinu þegar sprengingin varð, en hinn var með minni háttar meiðsl.
Sjúkraflutningamenn frá Hvolsvelli voru kallaðir á staðinn en stuttu síðar óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að svo heppilega hafi viljað til að þyrlan hafi verið á leið í flug þegar útkall barst um klukkan sjö í morgun.
Því liðu aðeins tíu mínútur þar til þyrlan, TF-EIR, fór í loftið og lenti hún í Þórsmörk um klukkan 7:30, sótti manninn og aðstandanda og lenti aftur á Reykjavíkurflugvelli klukkan 8:13.