Í dag munu forsætisráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, fjármálaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynna nýja útgáfu af aðgerðaáætlun í loftlagsmálum, en fyrri áætlunin var kynnt í september 2018. Var þá greint frá því að strax yrði farið í vinnu við nánari útfærslu sem nú lítur dagsins ljós, en búist er við miklum breytingum frá fyrri áætlun.
Í fyrri áætluninni var meðal annars gert ráð fyrir að verja 6,8 milljörðum á árunum 2018-2023 í aðgerðir í loftlagsmálum hér á landi. Var markmiðið að stuðla að aukinni kolefnisbindingu þannig að hægt væri að standa við markmið Parísarsamkomulagsins til 2030 og um markmið ríkisstjórnarinnar um að ná kolefnishlutleysi árið 2040.
Alls er að finna 34 aðgerðir á ýmsum sviðum í fyrri útgáfu áætlunarinnar, en megináherslurnar eru tvær. Í fyrsta lagi eru það orkuskipti í samgöngum, með sérstakri áherslu á rafvæðingu í vegasamgöngum. Þáttur í þessu er að ríkisstjórnin hyggst banna nýskráningu bíla sem einungis ganga fyrir jarðefnaeldneyti, bensíni og dísil, eftir árið 2030.
Í annan stað er um að ræða átak í kolefnisbindingu, þar sem skógrækt og landgræðsla eiga að gegna lykilhlutverki, auk þess sem draga átti úr losun gróðurhúsalofttegunda með endurheimt votlendis.
Á þessum fimm árum, frá 2018-2023 átti að verja fjórum milljörðum í umfangsmikið átak við endurheimt votlendis, birkiskóga og kjarrlendis, stöðvun jarðvegseyðingar og frekari landgræðslu og nýskógrækt til þess að vinna sérstaklega að markmiði um kolefnishlutleysi.
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá kynningunni klukkan 14:30 hér: