73 einstaklingar voru með skráð lögheimili á Bræðraborgarstíg 1, þar sem mikill eldsvoði varð í gær. Íbúarnir eru allir, nema einn, af erlendum uppruna. Þrír létust í eldsvoðanum í gær, en tveir eru enn á gjörgæslu.
Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Þar segir að 28 Pólverjar séu til heimilis í húsinu, 28 Lettar, 12 Litháar, þrír Rúmenar, einn Spánverji og einn Íslendingur. Langstærstur hluti þeirra sem er með lögheimili í húsinu er með erlent vegabréf en íslenska kennitölu.
Húsið, sem er á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu, er byggt 1906 og er samtals um 450 fermetrar að stærð. Á vef þjóðskrár er því skipt í fjóra hluta, tvær íbúðareignir, eina 111,3 fermetra og aðra 80,3 fermetra, skrifstofu 69 fermetra og leikskóla 191 fermetra, sem áður var starfræktur á neðstu hæð hússins.
Skráð íbúðarhúsnæði í húsinu er því samtals um 192 fermetrar.
Tveir voru handteknir á vettvangi fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu, en síðan sleppt eftir skýrslutökur. Einn er enn í haldi lögreglu í þágu rannsóknarinnar og mun ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir honum liggja fyrir síðar í dag.