Verulegur kostnaður er af skemmdarverkum af ýmsu tagi á byggingum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar að því er fram kemur í skýrslu starfshóps um öryggismál í skóla- og frístundastarfi.
Nemur kostnaður við viðgerðir á brotnum rúðum í skólum um 50 milljónum króna á árunum 2016-2019.
Í þeim þremur skólum þar sem kostnaður er hæstur er ekki öryggismyndavélakerfi. Kostnaður vegna rúðubrota reyndist 5,2 milljónir í einum skóla á umræddu tímabili, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þessi í Morgunblaðinu í dag.