„Malbikið er nánast eins og skautasvell og það er enginn grunur um ógætilegan akstur eða hraðakstur,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um aðstæður á Kjalarnesi þar sem alvarlegt umferðarslys varð á fjórða tímanum í dag.
Slysið varð með þeim hætti að bifhjól lenti framan á húsbíl sem kom á móti og annað bifhjól hafnaði utan vegar. Ökumaður og farþegi voru á fyrra bifhjólinu en aðeins ökumaður á því sem lenti út fyrir veg. Einn var í húsbílnum. Þrír voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en ekki er hægt að greina frá líðan þeirra að svo stöddu.
Vegagerðin varaði við vegkaflanum frá Hvalfjarðargöngum og inn í Kollafjörð fyrr í dag vegna nýs slitlags og því getur vegurinn verið varasamur í bleytu. Færslan þar sem varað er við aðstæðum á veginum virðist nú hafa verið fjarlægð af twittersíðu Vegagerðinnar.
Uppfært: G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segist aðspurður telja að færslan hafi sjálfkrafa verið tekin af Twitter. Þann háttinn hafi Vegagerðin gjarnan á til að tilkynningar úreldist ekki á vefnum.
Þá hafa mbl.is borist ábendingar frá ökumönnum sem höfðu sérstaklega samband við lögreglu og Vegagerðina til að vara við aðstæðum á veginum.
„Vegagerðin er veghaldari og ber ábyrgð á veginum,“ segir Ásgeir. Lögreglan hefur fengið ábendingar um að merkt sé að um sé að ræða nýtt slitlag á veginum, en einnig að það sé illa merkt.
Vinna á vettvangi stendur enn yfir og mun rannsókn lögreglu m.a. beinast að aðstæðum á veginum þegar slysið varð.
Lokað hefur verið fyrir umferð um Hvalfjarðargöngin frá því að slysið varð en fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að verið sé að minnka lokanir og verður opnað fyrir umferð á næstunni. Þá hefur fjöldahjálparstöð sem var opnuð í Klébergsskóla eftir slysið verið lokað en þangað gátu þeir sem vitni urðu að slysinu leitað sálræns stuðnings.