Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn slær á létta strengi á Twitter í tengslum við hneykslan sem málfar á skilti á Keflavíkurflugvelli hefur vakið.
Á skiltinu, sem blasir við farþegum áður en þeir koma að skimunarstöð vegna kórónuveirufaraldursins, stendur „Gerðu bar kóðann tilbúinn“, og hafa almannavarnir og Embætti landlæknis verið gagnrýnd fyrir slæma snörun yfir á íslensku.
„Þoli það ekki þegar ég rugla skiltum. Sorry þetta í Leifsstöð átti víst að fara á B5,“ skrifar Víðir á Twitter.
Þoli það ekki þegar ég rugla skiltum. Sorry þetta í Leifsstöð átti víst að fara á B5
— Víðir Reynisson (@VidirReynisson) June 29, 2020