Fólkið sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag hét Finnur Einarsson, 54 ára, og Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, 53 ára.
Þau voru sambýlisfólk, búsett í Garðabæ, og láta eftir sig fjögur uppkomin börn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.