„Mér finnst sjálfri ósköp leiðinlegt og dálítið sorglegt að bókaútgáfan, bæði prentun og allt sem við kemur bókum, sé komin á hendur erlendra aðila. Við erum í góðu sambandi við Forlagið en höfum lítið um þetta að segja.“
Þetta segir Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndagerðarkona og dóttir nóbelsskáldsins Halldórs Laxness í Morgunblaðinu í dag. Bent hefur verið á að með sölu á 70% hlut í Forlaginu til Storytel AB í Svíþjóð færist höfundarverk Laxness í erlenda eigu. Sjálf kveðst Guðný þó ekki hafa miklar áhyggjur af því.
Boðað hefur verið til fundar í stjórn Rithöfundasambands Íslands í dag þar sem ræða á fyrirhuguð kaup Storytel á Forlaginu. „Þeir félagsmenn sem við höfum heyrt í eru mjög óöruggir,“ segir Ragnheiður Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Rithöfundasambandsins, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.