Stjórn Herjólfs ohf. fundaði í dag og ákvað að loknum fundi að bjóða fulltrúum Sjómannafélags Íslands og fulltrúum starfsmanna Herjólfs hjá Sjómannafélaginu á fund á morgun til að reyna finna mögulega lausn á kjaradeilunni sem varð til þess að Herjólfur hefur ekkert siglt í dag vegna vinnustöðvunar.
Fundurinn hefst klukkan ellefu á morgun.
Þetta staðfestir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., í samtali við mbl.is. Hann vill ekki segja til um það hvort hann sé bjartsýnn á að það þokist til í deilunni á fundinum á morgun en vonast til þess.
Vinnustöðvun um 20 skipverja Herjólfs hófst á miðnætti sl. nótt og lýkur á miðnætti í kvöld.
Önnur vinnustöðvun er boðuð eftir viku, frá miðnætti 14. júlí og mun hún standa yfir í þrjá sólarhringa. Þriðja vinnustöðvunin verður svo frá miðnætti 28. Júlí og mun hún standa yfir í þrjá sólarhringa.
Ekki náðist í Jónas Garðarsson, formann samninganefndar Sjómannafélags Íslands, við vinnslu fréttarinnar.