Trufluðu umferð á hlaupahjólum

Ekki kemur fram í tilkynningu frá lögreglunna á Suðurnesjum hvort …
Ekki kemur fram í tilkynningu frá lögreglunna á Suðurnesjum hvort unglingarnir hafi verið á rafmagnshlaupahjólum eða hefðbundnum. AFP

Lögreglan á Suðurnesjum þurfti í nótt að hafa afskipti af nokkrum unglingum sem gerðu það að leik sínum að trufla umferð í Keflavík með því að fara á hlaupahjólum fyrir bíla sem voru á ferðinni.  Auk þessa máttu þeir ekki vera úti að nóttu til vegna aldurs. Unglingunum var veitt tiltal, ekið til síns heima og rætt verður við forráðamenn þeirra.

Í fyrrakvöld þurfti lögregla einnig að skerast í leikinn, einnig í Keflavík, þegar unglingar á hlaupahjólum iðkuðu að hlaupa fyrir bíla á hlaupahjólum. Rætt var við þá og forráðamenn þeirra.

Þá voru tveir tíu ára strákar staðnir að því að reiða hvor annan á vespu og voru þeir hjálmlausir í þokkabót. Einnig var talað við þá og forráðamenn þeirra.

Fáeinir voru kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina og ók sá sem greiðast fór á 142 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Þá voru höfð afskipti af fáeinum sem grunaðir voru um vímuefnaakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert