Benedikt Bogason hæstaréttardómari mun ekki taka sæti í máli þrotabús EK1923 gegn Sjöstjörnunni sem flutt verður fyrir Hæstarétti í haust. Þetta staðfestir hann við mbl.is.
mbl.is sagði um helgina frá því að Heiðar Ásberg Atlason, lögmaður Sjöstjörnunnar, félags athafnarmannsins Skúla Gunnars Sigfússonar, hefði sent forseta Hæstaréttar bréf þar sem hann krafðist þess að hæfi Benedikts sem dómara yrði skoðað. Vísaði hann til þess að Benedikt hafi nýlega verið í útskriftarveislu hjá tveimur dætrum skiptastjóra EK1923, Sveini Andra Sveinssyni. Sagði Heiðar við mbl.is um helgina: „Þú býður ekki kunningjum í útskriftarveislu, þú býður vinum þínum.“
Benedikt vildi ekki tjá sig frekar um ástæður þess að hann tæki ekki sæti í málinu þegar mbl.is leitaði eftir því, en þess má geta að í millitíðinni var Benedikt kjörinn forseti Hæstaréttar.
Fjöldi mála kom upp í tengslum við skipti EK1923, sem áður var í eigu Skúla, en það mál sem nú verður tekið fyrir í Hæstarétti er það langstærsta. Er þar tekist á um riftun á 223 milljónum annars vegar og 21 milljón hins vegar sem Sveinn Andri vildi fá frá félaginu Sjöstjörnunni.
Í héraði hafði Sjöstjarnan verið dæmt til að greiða þrotabúinu báðar upphæðirnar auk vaxta, samtals yfir 400 milljónir, en Landsréttur taldi aðeins að greiða ætti lægri upphæðina. Var sömuleiðis felld út kyrrsetning á eignum sem höfðu tengst greiðslu hærri upphæðarinnar. Sveinn Andri áfrýjaði til Hæstaréttar og samþykkti Hæstiréttur málskotsbeiðnina.