Fjögur innanlandssmit greindust í 118 sýnum sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans í gær. Virk smit eru því orðin 28, þar af 18 innanlandssmit.
Eitt smit greindist við landamærin, en beðið er eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu. 1.686 sýni voru tekin við landamærin.
187 eru í sóttkví og fjölgar á milli daga.