Landspítalinn færður á hættustig

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur

Landspítali hefur nú verið færður af óvissustigi á hættustig vegna COVID-19.

Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd daglega, að því er segir í tilkynningu.

Unnið er að undirbúningi að útfærslu þeirra tilmæla sem heilbrigðisráðherra gaf út í dag en Landspítalinn minnir á þær reglur sem hann setti í gær og eru birtar á vef spítalans

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert