Sigríður Á. Andersen, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, telur að færa hefði þurft ríkari rök fyrir því að tilefni væri til hertra aðgerða á landamærum vegna kórónuveirufaraldursins. Hún segir lítið fara fyrir grundvallarmannréttindum í umræðu um sóttvarnaaðgerðir.
Tilkynnt var á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og almannavarna í gær að frá og með miðvikudegi þurfi allir sem hingað koma til lands að fara í skimun við komuna, 4-6 daga sóttkví og því næst aðra skimun. Hefur ferðaþjónustan rekið upp ramakvein vegna þessa.
Aðspurð segir Sigríður að hún hefði kosið síður íþyngjandi útfærslu. „Ég hefði gert það. Ég held að fólk þurfi að færa ríkari rök fyrir því að aðstæður kalli á svona drastískar aðgerðir. Ég hefði frekar kosið að stjórnvöld væru í samskiptum við önnur ríki og hvettu til meira jafnvægis.“
Sigríður segir að það komi einnig á óvart að eftir hálfs árs faraldur séu sóttvarnaaðgerðir ekki enn komnar á borð löggjafans. „Það er óumdeilt að það er hægt að grípa til sóttvarnaaðgerða til skamms tíma [án aðkomu þingsins],“ segir Sigríður. En þegar hálft ár sé liðið komi á óvart að það hafi aldrei komið til umræðu.