Bílbruni á Höfðabakka

Ljósmynd/Tommi Thor Gudmundsson

Slökkviliðið var kallað út á níunda tímanum í morgun er eldur kviknaði í bifreið á Höfðabakkanum. Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins urðu engin slys á fólki en bifreiðin var alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang. 

Ekki er vitað hvað varð til þess að það kviknaði í bifreiðinni sem var í umferðinni þegar eldurinn kom upp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert