Heimilisofbeldismál ekki fleiri frá 2015

mbl.is/G.Rúnar

Frá árinu 2015 hefur aldrei verið tilkynnt um fleiri heimilisofbeldismál á landsvísu á einum mánuði en í maí 2020.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra, en þar segir að heimilisofbeldismál hafi verið 17,6% fleiri í lok júlí miðað við sama tímabil 2019. Þá hafi hlutfallið verið enn hærra í lok júní, eða 20,5%. Samanburður við árið 2018 sýnir 9,7% hækkun.

Fleiri brot hafa átt sér stað í fimm af níu embættum á sama tímabili ársins 2020 heldur en á sama tíma í fyrra, en sú er raunin hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglunni á Suðurnesjum Lögreglunni á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Vesturlandi.

Í tilkynningunni segir að þegar um sé að ræða brot sem byggi á að fólk tilkynni þau til lögreglu, eins og heimilisofbeldi, sé ekki hægt að vita eingöngu út frá lögreglugögnum hvort brotum sé í raun að fjölga eða hvort tilkynningum sé að fjölga.

Mjög mikilvægt sé að fylgjast með þessari þróun. Þegar meti eigi hvort um raunbreytingar á fjölda hafi verið að ræða eða ekki þarf að skoða reynslu almennings af brotum samhliða. Slílk sé t.d. gert með þolendakönnunum sem lögregla geri árlega í upphafi árs þar sem spurt sé um reynslu frá fyrra ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert