Stefnt á opnun í byrjun september

Stefnt er að opnun Krónunnar við Hallveigarstíg í september.
Stefnt er að opnun Krónunnar við Hallveigarstíg í september. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Fyrirhugað er að ný verslun Krónunnar opni á Hallveigarstíg í byrjun september. Í húsnæðinu var áður verslun Super1, en Festi, sem á meðal annars Krónuna, festi kaup á verslun Super1 að Hallveigarstíg fyrr í sumar.

Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar, segir fyrirhugað að verslunin opni í byrjun september.

„Við erum núna að vinna í því að taka húsnæðið í gegn og vonumst til að geta opnað fljótlega í byrjun september. Það eru enn þá framkvæmdir í gangi, búið er að hreinsa allt út úr versluninni og nú er bara verið að flota gólf og undirbúa allt,“ segir Kristinn í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert