Áfram verði val um 14 daga sóttkví

Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að forskrá sig …
Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að forskrá sig með því að fylla út rafrænt eyðublað þar sem meðal annars koma fram samskiptaupplýsingar, upplýsingar um hvar viðkomandi hefur dvalið, hvar hann hyggst dvelja í sóttkví á Íslandi og upplýs­ingar um heilsufar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Allir farþegar sem koma til Íslands frá og með miðnætti í kvöld geta valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með fimm daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins.

Það var hins vegar mat sóttvarnalæknis að ekki ætti að gefa einstaklingum kost á sóttkví í 14 daga við komuna til landsins, heldur ætti að skylda alla í sýnatöku.

Þetta kemur fram í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra sem Stjórnarráðið hefur birt. Þar segir að um 2.000 einstaklingar, eða um 1% allra ferðamanna frá 15. júní,  hafi valið að fara í sóttkví umfram sýnatöku. Nokkrum sinnum hafi komið upp sú staða að einstaklingar hafa valið að fara í sóttkví sem þeir hafi síðan ekki haldið. Í nokkrum tilfellum hafi komið í ljós að einstaklingar hafi verið smitaðir af COVID-19 og jafnvel dreift smiti til annarra á þeim tíma sem þeir áttu að vera í sóttkví.

Til skoðunar að hækka sektarheimildir

Í tilkynningu Stjórnarráðsins vegna þeirra reglna sem taka gildi á miðnætti segir hins vegar að ákveðið hafi verið að  halda áfram að bjóða fólki val um 14 daga sóttkví í stað skimunar en bregðast við tillögu sóttvarnalæknis hvað það varðar með auknu eftirliti til að tryggja að þeir sem velji þennan kost fari að reglum. Enn fremur sé til skoðunar að hækka sektarfjárhæðir við brotum á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim.

Börn fædd árið 2005 eða síðar eru undanþegin sýnatöku og sóttkví og sama gildir um þá sem íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýkingu og lokið einangrun, eða ef COVID-19 sýking hefur verið staðfest með mótefnamælingu. Tengifarþegar sem fara ekki út fyrir viðkomandi landamærastöð þurfa hvorki að fara í sóttkví eða í sýnatöku.

Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að forskrá sig með því að fylla út rafrænt eyðublað þar sem meðal annars koma fram samskiptaupplýsingar, upplýsingar um hvar viðkomandi hefur dvalið, hvar hann hyggst dvelja í sóttkví á Íslandi og upplýs­ingar um heilsufar. Þeim sem flytja farþega til Íslands er skylt að vekja athygli viðkomandi á skyldu til forskráningar með hæfilegum fyrirvara.

Gjald fyrir sýnatöku á landamærum verður óbreytt frá því sem verið hefur, þ.e. 9.000 kr. hafi viðkomandi greitt gjaldið við forskráningu fyrir komuna til landsins en 11.000 kr. ef greitt er á landamærum. Seinni sýnatakan er gjaldfrjáls.

Reglur um sóttkví eru eftirfarandi:

Einstaklingur í sóttkví;

  1. má ekki fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til, svo sem til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Hann má þó fara í gönguferðir en þarf að halda sig í a.m.k. 2 metra fjarlægð frá öðrum vegfarendum.
  2. má ekki taka á móti gestum á heimili sínu eða á þeim stað þar sem hann er í sóttkví meðan sóttkví stendur yfir.
  3. má ekki nota almenningssamgöngur en honum er heimilt að nota leigubíl.
  4. má ekki fara til vinnu eða skóla þar sem aðrir eru.
  5. má hvorki fara á mannamót né staði þar sem margir koma saman, þ.m.t. í verslanir eða lyfjabúðir.
  6. má ekki dvelja í sameiginlegum rýmum fjölbýlishúsa, hótela og öðrum sambærilegum rýmum, svo sem stigagöngum, þvottahúsum eða sameiginlegum görðum/útivistarsvæðum, nema á leið inn og út.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert