Einn mesti samdráttur í 150 ár

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM. mbl.is/​Hari

Íslenska hagkerfið stendur nú frammi fyrir einum mesta samdrætti sem mælst hefur síðustu 150 árin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM þar sem kallað er eftir tafarlausum aðgerðum til að bregðast við stöðunni á vinnumarkaði.

BHM skorar á stjórnvöld að hækka hámark tekjutengdra atvinnuleysisbóta og lengja tímabil tekjutengingar til að bæta afkomuöryggi fólks sem misst hefur vinnuna vegna samdráttar af völdum kórónuveirufaraldursins.

Einnig vill bandalagið að grunnupphæð atvinnuleysisbóta verði hækkuð en venjulegar fullar atvinnuleysisbætur eru nú kr. 289.510. Þá telur bandalagið mikilvægt að atvinnuleitendum verði gert kleift að stunda nám á næstu misserum án þess að það skerði rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Loks telur BHM brýnt að stjórnvöld grípi til sértækra aðgerða til að tryggja listafólki framfærslu en faraldurinn og sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda hafa kippt fótunum undan afkomu þessa hóps. 

85% fleiri háskólamenntaðir án vinnu nú en eftir hrunið

„Íslenska hagkerfið stendur nú frammi fyrir einum mesta samdrætti sem mælst hefur síðustu 150 árin. Á sama tíma eru meira en 4.500 háskólamenntaðir einstaklingar án atvinnu eða um 85% fleiri en í kjölfar efnahagshrunsins árið 2009, samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun. Í nýútkominni þjóðhagsspá Hagstofu Íslands er gert ráð fyrir rúmlega 8% samdrætti á árinu 2020 eða um 10% á hvern íbúa landsins. Leita þarf aftur til áranna 1882, 1916 og 1920 til að finna viðlíka samdrátt í efnahagslegum lífsgæðum.

Háskólamenntað fólk sem verður fyrir því að missa vinnuna um þessar mundir verður fyrir miklu fjárhagslegu áfalli, samkvæmt útreikningum BHM. Sé litið á einfaldan samanburð milli meðaltals heildarlauna í starfi og atvinnuleysisbóta má sjá að háskólamenntaður sérfræðingur sem horfir fram á atvinnuleysi í eitt ár tapar um 335 þúsund krónum í ráðstöfunartekjur að meðaltali á mánuði við að missa vinnuna. Jafngildir það um 55% tekjuskerðingu að meðaltali á ársgrundvelli,“ segir í tilkynningu frá BHM.

 Nánar um kröfur BHM

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert