Um 76 þúsund nýtt ferðagjafir

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hátt í 4.000 einstaklingar fengu greiddar hlutabætur í júlí en þeim hefur fækkað hratt á milli mánaða. Þann 13. ágúst sl. höfðu alls verið greiddir út rúmir 18 milljarðar króna vegna hlutabótaleiðarinnar. Þá hefur atvinnuleysi aukist lítillega milli júní og júlí.

Þetta kemur fram á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins þar sem farið er yfir aðgerðir stjórnvalda til að verja grunnstoðir samfélagsins vegna kórónuveirufaraldursins. Þar er bent á hlutastarfaleið, viðbótarlán, frestun skattgreiðslna, lokunarstyrki, greiðsluhlé lána, úttekt séreignarsparnaðar og styrkingu ferðaþjónustu.

Umsóknum frá einstaklingum um endurgreiðslur vegna íbúðarhúsnæðis hefur fjölgað mikið frá fyrra ári en endurgreiðsluhlutfall VSK af vinnu vegna nýbyggingar eða endurbóta á íbúðarhúsnæði var hækkað úr 60% í 100% og endurgreiðsluheimildir voru jafnframt víkkaðar út.  Vegna heimilisaðstoðar og reglulegrar umhirðu húsnæðis hafa Skattinum nú borist rúmlega eitt þúsund umsóknir. Vegna bílaviðgerða hafa borist um 4.900 endurgreiðsluumsóknir. Alls nema endurgreiðslur til þessa ríflega 12 ma.kr, segir á vef ráðuneytisins.

Alls hafa 136.555 einstaklingar sótt ferðagjafir og 948 fyrirtæki skráð sig til þátttöku. Um 76 þúsund einstaklingar hafa nýtt gjafir sínar hjá 759 fyrirtækjum. Að meðaltali hafa um 2.000 gjafir verið nýttar daglega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert