Bifreiðum og eldsneyti stolið

Lögregla að störfum. Mynd úr safni.
Lögregla að störfum. Mynd úr safni.

Lögreglu bárust tilkynningar um að minnsta kosti tvær stolnar bifreiðar í dag.

Annars vegar er um að ræða ljósbrúna Nissan Almera, árgerð 2005 og með skráningarnúmerið HD-807.

Hins vegar er um að ræða hvíta Hyundai I10-bifreið, 2014-árgerð, með skráningarnúmerið MI-H91. Var eldsneyti stolið á bensínstöð í austurbænum síðdegis í dag til að knýja hana áfram, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert