Níu kórónuveirusmit greindust í gær. Einstaklingum í sóttkví fjölgaði um rúmlega 100. Sex greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans en þrír hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Þetta kemur fram á covid.is.
Þá greindust þrjú smit við landamæraskimun. Einn er með mótefni en beðið er eftir niðurstöðu úr mótefnamælingu hjá tveimur.
Alls eru 112 í einangrun og einn á sjúkrahúsi. 655 eru í sóttkví.