Ólíklegt að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað

Breiðholt í Reykjavík.
Breiðholt í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur ólíklegt að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað í tengslum við líkfundinn í Breiðholti.

Líkið fannst í skóginum neðan við Hólahverfi í Breiðholti, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Ekki hefur tekist að bera kennsl á manninn, sem hefur líklega látist fyrir nokkru síðan.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og kennslanefnd ríkislögreglustjóra vinna að rannsókn málsins og því að bera kennsl á manninn.

Lögreglan getur ekki veitt nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert