Biskupstungnabraut lokað vegna malbikunar

Biskupstungnabraut verður alveg lokað milli Suðurlandsvegar og Grafningsvegar.
Biskupstungnabraut verður alveg lokað milli Suðurlandsvegar og Grafningsvegar.

Til stendur að malbika Biskupstungnabraut á milli gatnamóta við Hringveg og Þingvallavegar frá klukkan 4 aðfaranótt miðvikudagsins 26. ágúst til klukkan 1 aðfaranótt fimmtudagsins 27. ágúst. 

Biskupstungnabraut verður lokuð og merkt verður hjáleið um Skálholtsveg og Skeiða- og Hrunamannaveg. 

Vegfarendum frá höfuðborgarsvæðinu sem eiga leið í Grímsnes og Grafning er bent á hjáleið um Þingvelli. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp samkvæmt lokunaráætlun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert