Geta fengið atvinnuleysisbætur í námi

Frá Nýnemadögum Háskólans í Reykjavík í fyrra.
Frá Nýnemadögum Háskólans í Reykjavík í fyrra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Atvinnuleitendum verður gert kleift að hefja nám og fá fullar atvinnuleysisbætur í eina önn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Áætlað er að þetta muni kosta ríkissjóð 6,2 milljarða króna. Eftir fyrstu önnina tekur Menntasjóður námsmanna við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneyti.

Vert er að taka fram að stúdentum er þó almennt ekki heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur á meðan námi stendur eða í fríum frá skóla, svo sem sumarfríum, nema nám þeirra takmarkist við 10 ECTS einingar eða færri á önn.

„Frítekjumark vegna skattskyldra tekna einstaklinga sem koma af vinnumarkaði hefur verið hækkað úr 4,1 m.kr. í 6,8 m.kr. til að tryggja [þeim sem koma inn í nám af vinnumarkaði] rýmri rétt til námslána. Aðgerðirnar eru hluti af átakinu Nám er tækifæri en markmiðið er að koma til móts við atvinnuleitendur með markvissum aðgerðum og hvetja þá til þess að sækja sér formlega menntun til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Aðgerðirnar eru hluti af tillögum í mennta- og vinnumarkaðsmálum sem áætlað er að verja samtals 6,2 milljörðum króna í“, segir í tilkynningu. 

„Fjármögnun er tryggð fyrir allt að 3.000 atvinnuleitendur sem hafa verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur og vilja skrá sig í nám í dagskóla á vorönn 2021, haustönn 2021 eða vorönn 2022. Kjósi atvinnuleitendur að hefja nám mun það ekki hafa áhrif á bótarétt og nýtingu hans.“

Starfs- og tækninám í framhalds- og háskólum

Átakið afmarkast við starfs- og tækninám í framhaldsskóla eða háskóla þar sem fyrirsjáanlegur skortur er á starfsfólki í þeim geirum. Atvinnuleitendum verður einnig greidd leið í brúarnám. Þá verður háskólamenntuðum boðið upp á flýtileiðir til annarrar prófgráðu þar sem skortur er, til dæmis í og heilbrigðis- og kennslugreinum.

„Ríflega helmingur þeirra sem hafa verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur hafa einungis lokið grunnnámi. 500 milljónir króna verða settar í aðgerðir til að fjölga verulega þátttakendum í vottuðum námsleiðum framhaldsfræðslunnar og símenntastöðvanna í samstarfi Vinnumálastofnunar og Fræðslusjóð. Þá er fjármagn tryggt fyrir allt að 150 námsmenn í háskólabrýr“, segir í tilkynningu. 

100 milljónir í kynningar- og þróunarsjóð

Þá verða 100 milljónir króna settar í sérstakan kynningar- og þróunarsjóð til að skapa svigrúm til þróunar á nýjungum í námi, kennsluaðferðum og mati á reynslu atvinnuleitenda. Einnig verður ráðist í fjölbreyttar aðgerðir til uppbyggingar.

„Má þar nefna samskiptatorg atvinnu- og menntamála á Suðurnesjum, aukin áhersla hjá Vinnumálastofnun til að aðstoða viðkvæmustu hópana aftur inn á vinnumarkað ásamt því að NEET verkefni Vinnumálastofnunar, í samstarfi við VIRK, sem snýr að því að virkja 18-29 ára einstaklinga sem hafa flosnað upp úr námi eða verið inn og út af vinnumarkaði verður útvíkkað á landsvísu“, segir í tilkynningu. 

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, segir að fyrirséð sé að næstu misseri verði krefjandi.  „En við ætlum að blása til sóknar og gera atvinnuleitendum betur kleift að stunda nám án þess að missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Við ætlum þannig að koma til móts við atvinnuleitendur með markvissum aðgerðum, skapa þekkingu og virkja kraft til framtíðar. Það er skynsamlegt fyrir okkur sem samfélag að verja fjármunum í að virkja atvinnuleitendur til náms. Slíkt skilar sér í aukinni færni, þekkingu og verðmætum fyrir samfélagið allt til lengri tíma”, er haft eftir Ásmundi Einari í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert