Grindvíkingar urðu vel varir við skjálfta upp á 4,2 sem varð klukkan 16.15 í dag, að sögn bæjarstjóra Grindavíkurbæjar. Hann segir að árið 2020 hafi verið mikið skjálftaár og Grindvíkingar séu orðin öllu vanir en skjálftar af þessari stærð venjist þó ekki.
„Hann fannst ágætlega í Grindavík. Hann er þó talsvert langt í burtu frá okkur svo hann fannst kannski alveg jafn vel á höfuðborgarsvæðinu og hjá okkur,“ segir Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.
Skjálftinn átti upptök sín 3,2 kílómetra austur af Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Fannar var á leið frá Grindavík til Reykjavíkur þegar skjálftinn varð en hann á ekki von á því að tjón hafi orðið í byggð.
„Miðað við þær lýsingar sem ég hef fengið er þessi skjálfti ekkert sterkari en þeir sem við höfum fengið fyrr á þessu ári,“ segir Fannar.
„Þetta hefur verið mikið skjálftaár en það hefur verið friðsamlegt síðustu vikurnar. Þetta eru fyrstu skjálftarnir sem við höfum fundið fyrir á síðustu vikum þó þeir hafi mælst smáir og þó nokkuð margir inn á milli.“
Spurður hvort Grindvíkingar séu orðnir öllu vanir jánkar Fannar því. „En þetta venst nú samt ekki þegar skjálftarnir eru af stærri gerðinni eins og þessi.“
Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og hafa mbl.is einnig borist ábendingar um að hans hafi orðið vart á Stokkseyri og í Vestmannaeyjum.
Annar skjálfti varð fyrr í dag sem fannst víða á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Hann var af stærðinni 3,7 og varð 2,9 kílómetra austur af Fagradalsfjalli um klukkan korter í tvö í dag.