Beygði framhjá fuglum og lenti utan vegar

Bifreið hafnaði utan vegar á Garðvegi á Suðurnesjum þegar ökumaður reyndi að beygja framhjá fuglum á akbrautinni. Hann og farþegi í bílnum sluppu ómeiddir.

Annað umferðaróhapp varð þegar karlmaður sem var á mótorkrosshjóli sínu á Sólbrekkubraut fékk hjólið ofan á sig í einu stökkinu og var hann fluttur á heilbrigðisstofnun Suðurnesja með sjúkrabifreið, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Umferðarslys varð á Njarðarbraut við Grænásveg þegar bifreið var ekið aftan á aðra kyrrstæða. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar var fluttur á HSS.

Árekstur varð  einnig þegar vörubifreið og fólksbifreið skullu saman á gatnamótum í Njarðvík. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnar fann fyrir eymslum eftir áreksturinn og voru báðar bifreiðirnar óökufærar.

Kona var svo flutt með sjúkrabifreið á HSS eftir að hafa fallið niður stiga. Hún slasaðist en ekki er vitað um líðan hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert