Teknir með mikið magn lyfja

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn síðastliðinn föstudag eftir að tollgæslan hafði fundið umtalsvert magn af lyfjum í fórum þeirra. Mennirnir voru að koma frá Alicante.

Annar þeirra hafði sett aðskotahlut upp á gegnumlýsingarvél í tollsal þegar farangur hans var gegnumlýstur. Aðspurður sagði hann tollvörðum að um væri að ræða oxycontin-töflur. Auk þess var hann með um 300 töflur af mismunandi gerðum, til dæmis róandi lyf og flogaveikilyf, í fórum sínum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Hinn maðurinn var með nær 300 töflur, þar á meðal verkjalyf. Lögregla lagði hald á lyfin.

Með þrjár tunnur af landa

Þá hefur lögregla lagt hald á nokkuð af fíkniefnum þar sem komu við sögu fjórir einstaklingar í jafnmörgum málum. Þar var um að ræða kannabisefni og meint amfetamín.

Einnig voru höfð afskipti af konu sem staðin var að landabruggun. Hún var með þrjár tunnur af landa svo og bruggtæki á heimili sínu. Skýrsla var tekin af henni og hald lagt á vökvann og tækin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert