Hraðamyndavélar við gangbrautarljós á Hörgárbraut

Vegfarendur á leið yfir gangbraut á Hörgárbraut á Akureyri. Þar …
Vegfarendur á leið yfir gangbraut á Hörgárbraut á Akureyri. Þar hafa verið tíð slys á seinni árum. mbl.is/Margrét Þóra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra ásamt Akureyrarbæ og Vegagerðinni hafa komist að samkomulagi um uppsetningu hraðamyndavéla við gangbrautarljós á Hörgárbraut.

Settur verður upp myndavélabúnaður sem er hraða- og rauðljósamyndavél við gangbrautarljós á Hörgárbraut skammt norðan við Tryggvabraut og við Stórholt, að því er lögreglan greinir frá á Facebook.

Aðgerðin er liður í bættu umferðaröryggi á umræddum vegkafla, ekki síst fyrir börn sem leggja leið sína yfir Hörgárbraut á leið sinni til og frá skóla. Markmiðið með aðgerðinni er að tryggja að hámarkshraði sé virtur og að auka virðingu fyrir rauðu ljósi almennt.

Fyrirhugað samstarf lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, Akureyrarbæjar og Vegagerðarinnar byggir á fordæmi samstarfs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar fyrir hraðamyndavélar sem eru reknar í Reykjavík.

Um er að ræða nýja tegund af myndavélum sem hafa ekki verið teknar í notkun hérlendis áður. Hún er útbúin radartækni til hraðamælinga og verður vélin beintengd umferðarljósunum og mun nema stöðu ljósanna hverju sinni.

Reiknað er með því að hafist verði handa við uppsetningu á búnaðinum eftir um tvær vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert