Samið við Ljósið um fjarheilbrigðisþjónustu

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samgöngu- og heilbrigðisráðuneytið undirrituðu í dag samning við Ljósið um fjarheilbrigðisþjónustu í endurhæfingu krabbameinsgreinda. Um mikilvægt skref í endurhæfingu krabbameinsgreindra á landsbyggðinni er að ræða, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þeir sem greinast með krabbamein og eru búsettir á landsbyggðinni hafa hingað til í litlum mæli haft kost á að nýta sér þjónustu Ljóssins, enda er hún eins og sakir standa nær eingöngu aðgengileg í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi í Reykjavík.

Samningurinn hljóðar upp á 34 milljónir króna og hefur það að markmiði að veita fólki með krabbamein, sem búsett er á landsbyggðinni, og aðstandendum þeirra þjónustu með rafrænum hugbúnaði og bæta aðgengi íbúa um land allt að starfsemi Ljóssins.

Styrkurinn er veittur á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, en ein af aðgerðum hennar er að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Samningurinn er í takt við áherslur í heilbrigðisstefnu stjórnvalda um að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu með innleiðingu á fjarheilbrigðislausnum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Elsa. B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins undirrituðu samninginn í dag í húsakynnum Ljóssins við Langholtsveg.

„Það er afskaplega þýðingarmikið að íbúar á landsbyggðinni eigi tækifæri á að nýta sér endurhæfingarþjónustu Ljóssins til viðbótar við heilbrigðisþjónustu heima í héraði. Starfsfólk Ljóssins hefur unnið ómetanlegt starf á síðustu fimmtán árum og fyrir það ber að þakka,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert