Verið er þessa dagana að leggja lokahönd á endurbætur á veginum yfir Fróðárheiði á Snæfellsnesi.
Framkvæmdir hófust fyrir um hálfu öðru ári, það er endurbygging á 4,8 kílómetra löngum kafla á heiðinni norðanverðri – það er frá Valavatni að vegamótunum við Útnesveg skammt innan við Ólafsvík.
Að verki loknu verður komið bundið slitlag á veginn yfir heiðina, rúmlega 70 árum eftir að vegagerð þar hófst, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Vegurinn um Fróðárheiði liggur hæst í 361 metra hæð og liggur um snjóþungt skarð þar sem oft er illviðrasamt. Alls er leiðin yfir heiðina um 13 kílómetrar og er tenging milli Staðarsveitar og byggðarinnar á norðanverðu Nesinu.