Styrkir veittir til 23 fjölmiðlafyrirtækja

Alls uppfylltu 23 umsóknir skilyrðin.
Alls uppfylltu 23 umsóknir skilyrðin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögur fjölmiðlanefndar um sérstakan rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla, til að mæta efnahagsáhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Í reglugerð ráðherra frá 3. júlí 2020 er fjölmiðlanefnd falin umsýsla málsins. Nefndin auglýsti eftir umsóknum 10. júlí og umsóknarfrestur rann út 7. ágúst. Alls bárust 26 umsóknir um sérstakan rekstrarstuðning, þar af 25 frá fjölmiðlaveitum og ein frá félagi sem ekki telst fjölmiðlaveita í skilningi laga um fjölmiðla. Alls uppfylltu 23 umsóknir frá fjölmiðlaveitum skilyrði reglugerðar 670/2020 og skiptist stuðningsupphæðin á milli þeirra þannig:

  • Árvakur hf. (Morgunblaðið, mbl.is, K100) - 99.904.495 kr.
  • Ásprent – Stíll ehf. (Vikublaðið, vikubladid.is) - 2.239.059 kr.
  • Birtingur útgáfufélag ehf. (Mannlíf, mannlif.is) - 24.017.147 kr.
  • Björt útgáfa ehf. (Hafnfirðingur, hafnfirdingur.is) - 852.801 kr.
  • Bændasamtök Íslands (Bændablaðið, bbl.is, Tímarit Bændablaðsins, Hlaðvarp Bændablaðsins - 9.277.877 kr.
  • Eyjasýn ehf. (Eyjafréttir, eyjafrettir.is) - 3.091.497 kr.
  • Fröken ehf. (Reykjavík Grapevine, grapevine.is) - 7.596.783 kr.
  • Hönnunarhúsið ehf. (Fjarðarfréttir, fjardarfrettir.is) - 1.124.341 kr.
  • Kjarninn miðlar ehf. (Kjarninn.is, Hlaðvarp Kjarnans, Vísbending) - 9.299.482 kr.
  • Kópavogsblaðið slf. (Kópavogsblaðið, kopavogsbladid.is) - 466.962 kr.
  • MD Reykjavík ehf. (Iceland Review, icelandreview.is) - 5.997.042 kr.
  • Myllusetur ehf. (Fiskifréttir, fiskifrettir.is, Frjáls verslun, Viðskiptablaðið, vb.is) - 20.225.397 kr.
  • N4 ehf. (N4, N4 hlaðvarp, N4.is) - 13.527.946 kr.
  • Prentmet Oddi ehf. (Dagskráin – fréttablað Suðurlands, dfs.is) - 1.916.079 kr.
  • Saganet - Útvarp Saga ehf. (Útvarp Saga, utvarpsaga.is, utvarpsaga.is hlaðvarp) - 5.250.398 kr.
  • Skessuhorn ehf. (Skessuhorn, skessuhorn.is) - 7.326.329 kr.
  • Steinprent ehf. (Bæjarblaðið Jökull) - 1.683.126 kr.
  • Sýn hf. (Stöð 2, Bylgjan, Vísir.is) 91.118.336 kr.
  • Torg ehf. (Fréttablaðið, frettabladid.is, Hringbraut, hringbraut.is) - 64.754.052 kr.
  • Tunnan prentþjónusta ehf. (Hellan héraðsfréttablað, DB-blaðið) - 1.044.031 kr.
  • Útgáfufélag Austurlands ehf. (Austurglugginn, austurfrett.is) - 3.201.564 kr.
  • Útgáfufélagið Stundin ehf. (Stundin, stundin.is - 17.780.267 kr.
  • Víkurfréttir ehf. (Víkurfréttir, Vf.is) - 7.922.972 kr.

Litið til tryggingagjalds vegna launagreiðslna

Bent er á að Alþingi hafi í vor samþykkt að verja 400 milljónum króna til verkefnisins og falið ráðherra að setja reglugerð með stoð í 9. gr. laga nr. 37/2020.

„Þar er tilgreint að við ákvörðun um fjárhæð stuðnings verði litið til tryggingagjalds vegna launagreiðslna til blaða- og fréttamanna, myndatökumanna, ljósmyndara, ritstjóra og aðstoðarritstjóra á árinu 2019 vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni,“ segir í tilkynningunni.

Auk þess verði tekið mið af beinum verktakagreiðslum til sambærilegra aðila, útgáfutíðni miðilsins og fjölbreytileika. Upplýsingarnar skulu staðfestar af endurskoðanda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert