Fimm íbúðir í gamla kínverska sendiráðinu

Fyrrverandi húsnæði kínverska sendiráðsins verður breytt.
Fyrrverandi húsnæði kínverska sendiráðsins verður breytt. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er mynd­ar­legt hús og ég held að það verði mjög skemmti­legt þegar end­ur­bót­um er lokið,“ seg­ir Friðbert Friðberts­son, for­stjóri Heklu.

Friðbert er eig­andi húss­ins á Víðimel 29 sem um ára­bil var í eigu kín­verska sendi­ráðsins og þykir ein af fal­legri bygg­ing­um í Vest­ur­bæ Reykja­vík­ur. Það hef­ur staðið autt um hríð en nú á að gera brag­ar­bót á. Friðbert hef­ur sótt um leyfi hjá skipu­lags­yf­ir­völd­um í Reykja­vík til að breyta eign­inni í fimm sjálf­stæðar íbúðir, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Það var Ein­ar Sveins­son arki­tekt sem teiknaði húsið, sem er 724,5 fer­metr­ar að stærð, byggt árið 1946. Fast­eigna­mat húss­ins fyr­ir næsta ár er rúm­ar 290 millj­ón­ir króna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka