Héraðssaksóknari hefur ákært rúmlega fimmtugan karlmann fyrir morð í tengslum við mannslát sem varð þegar maður á sextugsaldri fékk fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss við Skyggnisbraut í Úlfarsárdal í Reykjavík mánudaginn 9. desember á síðasta ári.
RÚV greinir frá.
Hinn látni og hinn ákærði voru báðir frá Litháen og búsettir hérlendis.
Verkfræðingur og réttarmeinafræðingur vinna nú álitsgerð í málinu. Ákæra á hendur manninum var gefin út 3. júní síðastliðinn.
Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi þar til í febrúar og hefur verið í farbanni síðan.