Tvö ný smit innanlands

Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Tvö ný inn­an­lands­smit kór­ónu­veirunn­ar greind­ust á sam­eig­in­legri deild sýkla- og veiru­fræðideild­ar Land­spít­al­ans og Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar í gær.

Báðir sem greind­ust með smit­in voru þegar í sótt­kví við grein­ingu.

Þetta kem­ur fram á covid.is.

Fjög­ur smit á landa­mær­um

Fjór­ir greind­ust með veiruna á landa­mær­um og bíða sýni þeirra öll mót­efna­mæl­ing­ar.

Í ein­angr­un eru nú 76 manns. Í sótt­kví eru 233. Einn ligg­ur inni á sjúkra­húsi.

Tek­in voru 702 sýni hjá Íslenskri erfðagrein­ingu og sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­al­ans og 688 sýni tengd landa­mæra­skimun.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert