Með því að hækka endurgreiðslu frá ríkinu vegna kvikmyndagerðar væri hægt að laða mun stærri verkefni til Íslands að sögn Leifs B. Dagfinnssonar hjá True North.
„Við erum í dauðafæri. Ástæðan er sú að við erum að fá svo mikla athygli vegna Covid. Framleiðendur leita til okkar því þeir vita að hér er fámennt samfélag og nóg af plássi. Hins vegar stendur í mönnum hvað það er dýrt að vera hér,“ segir Leifur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
„Við fáum mikið af fyrirspurnum og þeir vilja koma hingað. Með réttum hvötum hætta þeir að koma í eina viku og verja 5 milljónum dollara og eru hér frekar í nokkra mánuði og verja 50 milljónum dollara,“ segir Leifur. 2