Vinna að nýjum spítala

Í lok ágústmánaðar voru opnuð tilboð vegna byggingar meðferðarkjarna nýs …
Í lok ágústmánaðar voru opnuð tilboð vegna byggingar meðferðarkjarna nýs Landspítala. Ljósmynd/Ari Þorleifsson

Gunn­ar Svavars­son, fram­kvæmda­stjóri Nýs Land­spít­ala, seg­ir að upp­bygg­ing nýs hús­næðis við Hring­braut sé á fullri ferð. Stefnt er að því að upp­steypa á meðferðar­kjarn­an­um, stærsta hús­inu, hefjst inn­an tíðar að sögn Gunn­ars.

„Það gætu verið allt að átta vik­ur í það þar sem yf­ir­ferð er í gangi.“ Á annað hundrað hönnuða og verk­efn­is­stjóra eru við störf á hverj­um degi í hönn­un­ar- og und­ir­bún­ings­verk­efn­um, að sögn Gunn­ars, en ÍAV er einnig á loka­stigi við frá­gang lóðaverk­efn­is og hellu­lagn­ingu. Fljót­lega komi nýr jarðvinnu­verktaki inn á svæðið, til þess að full­vinna frá­gang vinnu­búðareits­ins.

„Nú er staðan þannig að það hafa verið í gangi fjöl­mörg útboð tengd upp­bygg­ingu á svæðinu,“ seg­ir Gunn­ar í um­fjöll­un um þess­ar fram­kvæmd­ir í Morgn­blaðinu í dag. Flest útboðanna hafi verið opnuð í lok ág­úst­mánaðar og í byrj­un sept­em­ber­mánaðar en yf­ir­ferðar­tími stend­ur nú yfir og tek­ur síðan við kæru­frest­ur.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert