13 innanlandssmit greindust í gær, 12 á sameiginlegri deild sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans og Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) en einn í annarri skimun ÍE. Aðeins einn þeirra sem greindust var í sóttkví við greiningu.
Einn hefur verið lagður inn á spítala, veikur af COVID-19, en um er að ræða eldri einstakling, að sögn sóttvarnalæknis.
Tvö virk smit greindust við landamæraskimun.
Samtals eru nú 437 í sóttkví og 75 í einangrun. 2.118 eru í skimunarsóttkví.
582 sýni voru tekin á sameiginlegri deild sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans og ÍE í gær, 135 sýni í annarri skimun ÍE og 428 sýni á landamærunum.