Nemandi við Háskólann í Reykjavík sem hafði unnið að verkefni hjá Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Í kjölfarið voru allir sem störfuðu á sömu hæð og nemandinn sendir í skimun og svo í sóttkví. Í dag verða allir starfsmenn ÍE skimaðir fyrir veirunni. Enginn annar en nemandinn hefur greinst smitaður enn sem komið er.
Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, í samtali við mbl.is. Nemandinn, ungur piltur, hafði ekki verið í húsi síðan á fimmtudaginn í síðustu viku.
„Við reiknum með því að ef einhverjir hefðu smitast af honum þá hefðu þeir greinst jákvæðir í gær. Síðan eru allir í húsinu skimaðir í dag. Svo voru tveir einstaklingar sem voru í nánum tengslum við þennan pilt utan fyrirtækisins sendir í sóttkví og verða þar þangað til þeir eru búnir að vera í viku – þá verða þeir prófaðir aftur.“
Sýni sem tekin eru vegna kórónuveirunnar hafa að undanförnu verið greind í húsnæði ÍE. Spurður hvort smitið hafi einhver áhrif á skimun ÍE segir Kári:
„Það hefur alls konar áhrif, til dæmis þau að við skimum núna allt húsið. Einnig að við ætlum að bjóða upp á að skima báða háskólana, Háskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands. Við erum farin að sjá mynstur sem bendir til þess að það sé dálítið mikið um svona smit þar sem unga fólkið vinnur.“