Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu

Varað er við að neyta kjúklingsins.
Varað er við að neyta kjúklingsins.

Mat­væla­stofn­un var­ar við neyslu á til­tekn­um kjúk­lingi vegna gruns um salmo­nellu.

Mat­væla­fram­leiðand­inn Reykjag­arður hf. hef­ur stöðvað sölu og innkall­ar af markaði eina lotu af kjúk­lingi.

Inn­köll­un­in nær ein­göngu til eft­ir­far­andi rekj­an­leika­núm­ers:

  • Vöru­heiti: Holta, Kjör­fugl og Krónu kjúk­ling­ur (Heill fugl, bring­ur, lund­ir, bit­ar)
  • Rekj­an­leika­núm­er: 001-20-33-1-02
  • Dreif­ing: Ice­land versl­an­ir, Hag­kaupsversl­an­ir, Krón­an, KR, Kjar­val, Nettó, Costco, Extra24, Heim­kaup, Kaup­fé­lag Skag­f­irðinga, Bjarna­búð, Kjör­búðin, Hlíðakaup

Neyt­end­ur sem hafa keypt kjúk­linga með þessu rekj­an­leika­núm­eri eru beðnir að skila vör­unni til viðkom­andi versl­un­ar eða beint til Reykjag­arðs hf., Foss­hálsi 1, 110 Reykja­vík.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert